Hringleikahús nútímans

Takk fyrir mig, Blað!Ég á örfáa vini, en gæði þeirra eru algjörlega í öfugu hlutfalli við fæðina. Einn þeirra hringdi rétt í þessu og vakti athygli mína á því að vitnað hefði verið í Blogg schmogg í Blaðinu í gær (takk fyrir, Blað!). Ég fékk kökk í hálsinn og hálf táraðist vegna þessa enda sannar svona birting að maður er á leið í uppsali bloggheima. Bloggari meðal bloggara. Alltént vil ég trúa því!

Engan þekki ég sem hefur betra innsæi þegar kemur að mannlegu eðli en þennan vin minn. Hann er yfirburða hæfileikamaður á flest öllum þeim sviðum sem hann snertir. Undantekningin frá þessari reglu er nútímatækni, en hún virðist einhvern veginn fara yfir ofan garð og neðan hjá kalli, en það er efni í aðra bloggfærslu. Í samtali okkar leiddi hann mig í allan sannleika um hvernig aðdáendaheimur íþróttanna væri í raun hringleikahús nútímans.

Til forna voru hringleikahúsin byggð svo pöpullinn gæti fengið gleði sinni og gremju útrás við að tilbiðja eða bölva hetjum sínum. Þetta virðist vera það sem aðdáendur íþróttaliða sækja í. Tilfinningar ráða iðulega för og skammt er á milli hæstu hæða og lægstu dala. Íþróttamennirnir gegna hlutverki skylmingaþrælanna sem berjast fyrir lífi sínu í hvert skipti sem haldið er út á vígvöllinn. Þegar vel gengur vísa þumlar aðdáendanna upp, en um leið og blæs á móti eru þeir fljótir að vísa þrælunum til leiðar í neðra. Sigurvegarar eru baðaðir rósablöðum og elsku þegar vel gengur, en blæðir út á vígvellinum þegar illa hefur árað. Þumallinn ræður för og segir til um hvort íþróttamaðurinn eigi náttstað í himnasæng eða Heljargreip.

Líklega er þetta gott mál fyrir marga og dagljóst er að íþróttamennirnir velja sér sitt hlutskipti. Hins vegar myndi ég ekki kæra mig um að eiga svo mikið undir því að andstæðingar mínir hverju sinni væru lélegri en ég!


Af 'stuðningsfólki' og elsku þess!

Stuðningsmaður?Ég hygg að varla sé til hviklyndara og vanþakklátara lið en svokallað 'stuðningsfólk' íslensku landsliðanna í handbolta og knattspyrnu. Þetta lið reigir sig og beygir þegar vel gengur og kallar íþróttamennina 'strákana sína', en um leið og á móti blæs verða óskabörnin að óhreinu börnunum hennar Evu. Ekki þarf nema einn eða tvo tapleiki í röð og þá er öll hollusta þessa liðs rokin út í veður og vind og upp hefst vandlætingarrausið. Iðulega er annað tveggja spurt hvort reka eigi þjálfarann eða þá bara hreint og beint sagt blákalt að nú eigi sá aumi þrjótur að taka pokann sinn og lyppast á brott.

Það vita þeir sem til mín þekkja að ég gef mig lítt að íþróttum og má það líklega mest rekja til vangetu minnar í þeim efnum. Það breytir því þó ekki að það stingur mig alltaf jafn mikið þegar 'stuðningsfólkið', iðulega með fréttamenn í fararbroddi, snýst gegn strákunum af þvílíku offorsi að ætla mætti að þeir hefðu drýgt ljótan glæp. Kann þetta fólk ekki að skammast sín? Getur það ekki sett málin í rétt samhengi og séð að þarna er bara um að ræða íþróttir þar sem mestu skiptir að vera með? Þar sem sigur er bara bónus, ef hann næst? Nei, þarna er um að tefla líf og dauða og nú er heimsendir í nánd sökum þess að þessir oföldu íþróttahjassar náðu ekki að sigra þá aumu sveit sem Lichtenstein tefldi fram hér á dögunum. Nú skal þjálfarinn kenna á heilagri og réttlátri reiði 'stuðningsfólksins', sá armi þrjótur skal finna til tevatnsins!

Illt er vanþakklæti 'stuðningsfólksins', en verri er þeirra elska!


Kolefnissprengjan

VotlendiÉg var að lesa magnaða grein í Viðskiptablaðinu sem græninginn Ólafur Teitur Guðnason ritar. Þar fjallar nafni minn um framræsingu votlendis sem farið var í með oddi og egg á árunum frá 1941 og allt fram til 1987. Ræst var fram votlendi hvers flatarmál telur um 4% af heildar flatarmáli Íslands með ríkisstyrktum greftri skurða sem samanlagt eru 32 þúsund kílómetrar að lengd. Þetta eru magntölur sem forvígismenn gömlu Ráðstjórnarríkjanna hefðu vel getað verið afar stoltir af. Það er margt hryggilegt við þetta, en eitt þó umfram allt annað og það er að nú rýkur kolefni úr sprökþurrum sverðinum sem áður var bundið í mýrum.

Ólafur Teitur bendir á í grein sinni að í gegnum framrás tímans hafi ómælt magn lífræns efnis sokkið ofan í votlendisbreiður landsins og varðveist þar sökum þess að það komst ekki í snertingu við súrefni. Um leið og mýrarnar voru ræstar fram komst súrefni að þessum lífmassa sem byrjaði þá umsvifalaust að rotna og gefa frá sér kolefnið sem allt er að drepa. Maður hefði svo sem haldið að nokkrar fúamýrar geti nú ekki vegið þungt þegar áhrif þeirra eru borin saman við kolefnislosun þá sem verður til við eldsneytisbruna ökutækja okkar og skipaflota, en það gæti ekki verið fjær veruleikanum.

Ólafur Teitur greinir frá því að árið 2004 hafi nettó losun kolefnis hérlendis numið 3,5 milljónum tonna, þ.e. þegar búið er að jafna heildarlosun á móti náttúrulegri bindingu. Sérfræðingar áætla hins vegar að fyrrum fúamýrar séu að skila frá sér allt að 7,2 milljónum tonna af kolefni árlega eða rúmlega tvöfaldu því magni sem við erum beint ábyrg fyrir! Sé þetta umreiknað í bílaígildi með ríflegum vikmörkum er hægt að segja að þurrlendislosunin jafnist á við kolefnismengun frá 450 þúsund bílum hið minnsta til allt að 1,8 milljón bíla!

Það hefur verið gerð tilraun með endurheimt á votlendi fyrir norðan sem fólst í því að gömlum uppgreftri var einfaldlega ýtt aftur ofan í skurði. Á tiltölulega skömmum tíma jafnaði landið sig aftur og byrjaði þannig á ný að binda kolefni í stað þess að losa það út í andrúmsloftið. Þessi aðgerð kostaði afar lítil fjárútlát, en skilaði miklum ávinningi. Ljóst er að ekki er alls staðar hægt að beita svo einföldum aðferðum við endurheimt á mýrum landsins, en telja má að ef horft er á kolefnislosun og bindingu sérstaklega muni nokkuð dýrari aðgerðir þó vera að skila mun meiri ávinningi en skógrækt.

Ég hef mært framtak það sem hefur yfirskriftina Kolviður, enda tel ég þar á ferð afar þarft verkefni. Hins vegar sést að mestum árangri í baráttunni við kolefnið er hægt að ná með endurheimt mýrlendis. Ég mun halda því áfram að kolefnisjafna bílinn minn í gegnum Kolvið, en ég mun líka reka tána í steinvölur og moldarhauga næst þegar ég rölti fram hjá gömlum fráveituskurðum og leggja þannig mitt af mörkum til að endurheimta votlendið. Ég þykist vita að keldusvínið verður mér þakklátt fyrir vikið.

Áhugasamir geta hringt á skrifstofu Viðskiptablaðsins og keypt tölublaðið sem geymir þessa frábæru grein. Það er gefið út 25. maí 2007 og síminn er 511-6622.


Starcraft 2

Starcraft 2Starcraft II continues the epic saga of the Protoss, Terran, and Zerg. These three distinct and powerful races will clash once again in the fast-paced real-time strategy sequel to the legendary original, StarCraft. Legions of veteran, upgraded, and brand-new unit types will do battle across the galaxy, as each faction struggles for survival.

Featuring a unique single-player campaign that picks up where StarCraft: Brood War left off, StarCraft II will present a cast of new heroes and familiar faces in an edgy sci-fi story filled with adventure and intrigue. In addition, Blizzard will again offer unparalleled online play through Battle.net, the company's world-renowned gaming service, with several enhancements and new features to make StarCraft II the ultimate competitive real-time strategy game.

Features:

  • Fast-paced, hard-hitting, tightly balanced competitive real-time strategy gameplay that recaptures and improves on the magic of the original game
  • Three completely distinct races:
    • Protoss
    • Terran
    • Zerg
  • New units and gameplay mechanics further distinguish each race
  • Groundbreaking single-player "story-mode" campaign
  • Vibrant new 3D-graphics engine with support for dazzling visual effects and massive unit and army sizes
  • Full multiplayer support, with new competitive features and matchmaking utilities available through Battle.net
  • Full map-making and scripting tools to give players incredible freedom in customizing and personalizing their gameplay experience

Smelltu: www.starcraft2.com


Kolviður

KolviðurÉg kíkti rétt í þessu inn á vef Kolviðar, www.kolvidur.is. Þarna er að finna snjalla og þægilega leið fyrir einstaklinga og fyrirtæki til þess að kolefnisjafna bifreiðar sínar þannig að notkun þeirra geti verið í góðri sátt við umhverfið.

Þetta er einfaldur og aðgengilegur vefur. Gestir gefa upp bílnúmer og áætlaðan akstur þeirra ökutækja sem þeir vilja kolefnisjafna og fá til baka áætlun um hversu mörg tré þarf að gróðursetja til þess að markmiðinu sé náð. Í mínu tilfelli eru það 39 tré sem gróðursett verða á Geitasandi á Suðurlandi. Svo er greitt með greiðslukorti og eftir það er ekið næsta árið í þeirri góðu vissu að búið sé að upphefja þá mengun sem viðkomandi ökutæki gefa frá sér.

Ég hvet alla til að kíkja á vef Kolviðs. Það eru traustir aðilar sem að verkefninu standa og er þeim vel treystandi til þess að inna þetta verkefni vel af hendi. Það er tilvalið að nota þjónustu Kolviðs sem tækifærisgjöf fyrir þá sem eiga allt (og þeir eru býsna margir hérlendis). Gefum kolefnisjöfnun í stað forgengilegra blóma, það er gjöf sem endist langa framtíð.

Það þarf svo ekki að fjölyrða um hversu mikilvægt þetta er fyrir okkur sem íbúa jarðar og þá sér í lagi börnin okkar og barnabörn. Þau munu þurfa að bera byrðarnar í framtíðinni verði ekkert að gert.


Niðurlæging Sjálfstæðisflokksins

Tapari ...Það versta hefur gerst, Framsókn "hélt" velli. Ég sé fyrir mér formann flokksins í fréttatímum dagsins þar sem hann segir; "Ég kannast ekki við það að flokkurinn hafi fengið slæma niðurstöðu úr kosningunum. Mig rekur ekki minni til þess að hann hafi goldið sérstök afhroð". Það er nefnilega svo magnað að minni Framsóknarflokksins er afar valkvæmt og kristallast það í fádæma slæmu og valbundnu minni formannsins sem aldrei virðist muna eftir því sem aflaga fer. Það er næsta víst að rósrauðu lonjettunum verður brugðið á nefið í dag og niðurstöður kosninganna túlkaðar sem stórkostlegur varnarsigur. Það er ekki langt síðan kjósendur kusu með einbeittum hætti gegn Framsókn í borginni þrátt fyrir magnaða brosherferð frambjóðandans hér, en engu að síður voru úrslitin túlkuð á besta veg og Framsókn fékk sætin sín. Það er gott að brosa!

Annars er Framsóknarflokkurinn magnað fyrirbæri, hann hefur eins bjagaða sjálfsmynd og mest getur orðið. Það er best að lýsa þessu í máli sem hann skilur og leita líkinga í sveitinni (hann hefur augsýnilega enga skírskotun í borgarlífinu!!):

  • Sýn Framsóknarflokksins: Stæltur og glæstur veðhlaupahestur sem sigrar hvert hlaupið á fætur öðru og hreppir stöðugt silfrið.

  • Raunveruleikinn: Aflóga og draghölt trunta sem er ætíð dregin í mark af sigurvegaranum. Fær ætíð annað tækifæri í haganum meðan það ætti í raun að leiða hana bak við skúr og lóga henni.

Þó er í raun ekki við Framsókn að sakast vegna góðs gengi hennar eftir hörmuleg kosningaúrslit. Ábyrgðin liggur hjá Sjálfstæðisflokknum því það er hann sem ætíð leiðir þessa höltu truntu að jötunni, kembir henni og klappar og í því liggur niðurlæging hans. Flokkurinn treystir sér augsýnilega ekki í ríkisstjórn nema með auðsveipum Framsóknarflokknum sem tekur þakklátur við hverju því sem að honum er rétt, en er svo jafn snöggur upp á lagið að stinga Sjálfstæðisflokkinn í bakið um leið og hann getur. Það sannaðist þegar forsætisráðuneytið var vélað yfir til Framsóknar hér í denn. Þá lagðist Framsókn lágt, en Sjálfstæðisflokkurinn lægra.

Ég vona að forystumenn Sjálfstæðisflokksins sjái nú að sér og lesi raunverulegan hug kjósenda úr könnuninni - fólk vill ekki Framsókn! En nú sé ég formann flokksins á Stöð 2 í þessum rituðu orðum að verja Framsókn. Verið er að leggja línurnar fyrir niðurlægingu næstu fjögurra ára og í augum formannsins er draghalta Framsóknartruntan óðum að breytast í veðhlaupahestinn glæsta.

Oj!


mbl.is Ríkisstjórnin hélt velli með minnsta mun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yibbíí!

Yahoo!Hvernig sem allt veltur eru þetta frábærar fréttir. Líklega kemur ekkert út úr þessu strax, enda margt hér sem þarf að laga þótt tekist hafi að leggja skosku rottuna að velli, en lengi vel hélt hún íslenskum netverjum í gíslingu með óseðjanlegri nagþörf sinni. Það þarf að treysta netsamband við útlönd og það mun gagnast öllum óháð því hvort Yahoo! reki hér á fjörur.

Mjór er mikils vísir. Í dag fögnum við og vonandi verður lagt í lagningu nýs sæstrengs fyrir kvöldið. Það væri flott fyrir kosningar, annað eins hefur nú sést undanfarið!


mbl.is Yahoo kannar möguleika á netþjónabúi hér á landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sparkað í fjallkonuna!

Íslenski örninnEr ekki ótrúlegt að í dag skuli finnast svo illa innrætt fólk að það leggji lykkju á leið sína til að spilla fyrir arnarvarpi? Í mínum huga er þetta sama fólk og mun bráðlega ganga að fjallkonunni á Austurvelli og sparka hana í sköflunginn.

Tilvera arnarins hérlendis er viðkvæmt fjöregg sem allir verða á leggjast á eitt um að vernda og hlú að. Það er ekki hægt að hafa einhverja arfaklikkaða vitleysinga vaðandi uppi í einhverju dæmalausu fýlukasti og spilla fyrir viðveru þessa tignarlega og gamla borgara landsins sem í raun á mun meiri tilverurétt hér á þessari eyju en margur annar. Þetta aumingjalið á að hýða í opinberri athöfn á Lækjartorgi þannig að blæði úr skutnum.

Mynd: Icelandic Geographic


mbl.is Illa lítur út með arnarvarp nú í vor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar skall hurð nærri hælum!

DátiÞað er eins gott að óvildarmenn íslenska lýðveldisins skuli ekki hafa áttað sig á því að um nokkurt skeið höfum við verið algjörlega varnarlaus því líklega hefðu þeir brugðist skjótt við og ráðist hér inn meðan lag var til. Hér er eftir mörgu að seilast og því er ég altént afar feginn því að óvinir okkar létu það vera að ráðast á okkur. Það hefði eiginlega verið frekar óhentugt og jafnvel bara leiðinlegt.

Nú er hins vegar fokið í öll skjól hjá þeim, enda þurfa þeir nú að glíma við harðvítuga léttsveit lýðveldisins (lesist: varalið) og frændur okkar, Norðmenn og Dani, sem hafa hingað ekki getað litið upp frá byssuskeftunum enda uppteknir til að hrinda árásum á eigin lönd.

Ætli Norðmenn og Danir finni fyrir sömu aukningu í öryggistilfinningu, nú þegar þeir hafa greiðan aðgang að léttsveit lýðveldisins? Ætli þeir hrósi ekki happi yfir því að nú skuli þeir geta kallað til þessa óvígu sveit? Hin þríeina fylking Íslendinga, Dana og Norðmanna mun skjóta illmennum heimsins skelk í bringu og mun þeir aldrei hætta sér hingað á mitt Norður-Atlantshaf því ekki vilja þeir fá vonda lexíu í hennar boði!


mbl.is Sameiginleg sýn á þróun öryggismála staðfest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brandari á alþjóðlegri stærðargráðu!

VaraliðÁður en farið er í að spyrja hvort það eigi að styrkja varnir landsins, er þá ekki nær að kanna hvort það sé yfir höfuð nauðsyn að halda uppi vörnum? Er þetta sífellda varnarhjal ekki bara afleiðing kalbletta í sálarlífi manna sem enn telja möguleika á því að aftur geti skollið á kalt stríð? Hverjir eru líklegir til að sitja úti í heimi og gera áætlanir um fjandsamlega yfirtöku íslenska ríkisins? Rússar? Talibanar? Ég er á því að niðurstaða úr skoðanakönnun sem þessari sé 'pöntuð', þ.e. að spurningar séu þannig fram settar að það sé býsna erfitt að svara þeim á nema einn veg án þess að líta út fyrir að vera landráðamaður. Var spurt í þessari könnun hvort svarendur teldu virkilega þörf á varnarliði? Var viðhorf almennings til þess grundvallarþáttar rannsakað nægilega?

Í mínum huga á að styrkja löggæslu hérlendis, en það á ekki að gera með kvartþúsund manna hópi sem hleypur um víðan völl í Henson-göllum með ullarhúfur. Ef við höfum efni á slíkum hópi á bakvakt (orðið 'varalið' ber það með sér að það er einungis kallað út endrum og sinnum), höfum við þá ekki jafn mikið efni á því að bæta t.d. 50 föstum stöðugildum í aðallið lögreglu? Það er ljóst (í mínum huga, altént) að þetta er fyrsti vísir að hervæðingu hérlendis og er til nokkuð fyndnara en tilhugsun um íslenskan her? Er hugmyndin um íslenskan her ekki það arfavitlausasta sem nokkur maður hefur látið út úr sér? Ég hvet lesendur til að segja eftirfarandi upphátt:

  • í réttstöðu, fyrsti flokkur Hlíðarendadeildar
  • fram og hægri snú, Þorbjörn majór
  • hentu þér á jörðina og gerðu fimmtíu armbeygjur, óbreyttur Friðrik
  • mundaðu skammbyssuna rétt, Friðfinnur liðþjálfi
  • skv. skipun frá Gunnari ofursta ...
  • Björn marskálkur mun fylgjast með hersýningu dagsins
  • kemur þú frá Raufarhöfn, majónes?
  • taktu fimm menn með þér, Ingvar stórskotaliði, og verðu Bakarabrekkuna til síðasta manns!!!!

Íslenskur her verður líklega eini hvatinn fyrir óvinveitta aðila að ráðast á okkur því þeir munu væntanlega vilja sjá það skemmtiatriði sem þessi herdeild mun verða. Grínið er þó grátt því reynslan sýnir að það er ekkert til sem kalla má "passlega stór og hagkvæmt rekinn" her. Her sogar til sín fjármagn og til gamans má geta að skv. Wikipedia fara 17% af fjárlögum BNA í hernaðarstúss. Skv. því myndi íslenskur her taka til sín 60 milljarða sem líklega færu í skriðdreka í sauðalitunum.

Það væri nú samt býsna flott að vera í hernum og heyra: "Þetta veltur allt á þér, Ólafur sérsveitarselur ... þú verður að koma í veg fyrir að óvinurinn geti komist á land við ylströndina! Þú mátt beita öllum ráðum til að það gerist ekki!".

Þvílík sæla!


mbl.is Meirihluti hlynntur stofnun varaliðs lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband