Hreinir sveinar Páfagarðs

Benedikt XVIEnn og aftur vilja hreinu sveinarnar í herdeildum Ratzinger páfa hlutast til um líf fólks. Þarna vildu þeir setja líf níu ára telpu á spil fyrir tvo frumuklasa sem hefðu líklega dregið hana til dauða, hefðu þeir fengið að þroskast betur. Þeir víluðu ekki fyrir sér að tefla lífi hennar í tvísýnu og sýndu þannig að þeir mátu líf hennar einskís meðan gjörðir þeirra sem vildu henni vel brutu í bága við þrúgandi kennisetningar kirkjunnar. Virðing þeirra fyrir lífi hennar er mun minni en ótti þeirra við að gengið sé gegn einhverju mest þrúgandi valdboði gagnvart konum sem til er.

Mér finnst það huggulegt ... að hreinu sveinar Ratzinger páfa skuli vera tilbúnir til að fórna níu ára gömlu barni bara til þess að standa á eigin 'prinsippi'. Það er grand og stórmannlega gert af þessum hreinu og guðlegu sveinum! Ég er viss um að móðir og læknir telpunnar kunna þeim maklegar þakkir fyrir hlýhug á þessum erfiðu tímum! Nei, bíddu við ... þau voru víst bannfærð fyrir að bjarga lífi hennar. Hafi þessir óþokkar ævarandi skömm fyrir að láta líf barnsins ganga fyrir hagsmunum kaþólsku kirkjunnar! Þetta óhelga tvíeyki er best komið á ísköldum freranum sem bíður þeirra sem reknir eru út á túndrurnar utan ylvolgs faðms kirkjunnar. Þau hefðu auðvitað átt að treysta hreinu sveinum Ratzinger páfa og þannig sent telpuna út í nær vísan dauðdaga. Þá væru þeir góðir kaþólikkar.

Nú eru þeir bara vondir fyrrverandi kaþólikkar ... eða þannig!

Tengt efni: BBC - World Have Your Say


mbl.is Vatíkanið tekur undir fordæmingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: kiza

Og nota bene: stjúpfaðirinn sem nauðgaði stúlkunni og gerði hana ólétta af tvíburunum slapp án þess að vera útskúfaður (excommunicated), þar sem réttindi ófædds, óformaðs frumuklasa gilda hærra en réttur lítillar stúlku á líkama sínum. Læknarnir, stúlkan og móðir hennar voru öll útskúfuð úr Kaþólsku kirkjunni (og þ.a.l. himnaríki).

Kemur kannski ekkert á óvart þar sem Vatíkanið hefur haldið skjóli yfir barnaníðingum og ofbeldisseggjum í árhundruð ef ekki þúsaldir.

Fokk það er meira en vika síðan ég las þetta og ég er ennþá fjúkandi   

kiza, 16.3.2009 kl. 21:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband