Guđdómleg spádómsgáfa

Spámađurinn ég!Í nótt sem leiđ bylti ég mér á alla kanta ţví ţađ sóttu ađ mér andar. Ég gat vart sofiđ fyrir ţessari ásókn og fannst mér sem ég vćri í beinu sambandi viđ hiđ órćđa. Andarnir sýndu mér margt og sýnirnar voru torrćđar í byrjun, en tóku smám saman á sig skýrari myndir. Einn af öđrum heimsóttu mig aldnir meistarar úr fornri tíđ og töluđum tungum sem ég skildi ekki ... ekki alveg strax! Draugar fortíđar, nútíđar og framtíđar gerđu sér dćlt viđ mig og voru atlot ţeirra fálmkennd í fyrstu en urđu brátt einbeittari. Tölur röđuđust upp í spaklegar rađir, tungl himins skipuđu sér í fylkingar, ótal sundurlausar raddir urđu ađ einni, tryllingslegir litir tóku á sig form regnbogans, tćtingslegir tónar urđu ađ dásamlegri sinfóníu og ég, efasemdarmađurinn, sá ađ ég gat lesiđ framtíđina eins og vćri hún opin bók! Ég? sem hef ćtíđ efast! Ég get rýnt í ţoku morgundagsins og séđ ţađ landslag sem mun marka ókomna tíma. Ég get lesiđ vilja almćttisins! Ég sé í gegnum holt og hćđir!! Ég er spámađur í mínu föđurlandi!! Ég er Alfa og Ómega!!!!

Ég sé ... ég sé ... já, ÉG SÉ ... ađ notađir iPhone símar munu hrapa í verđi í kvöld!


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Góđur!!

Bjarndís Helena Mitchell, 10.6.2008 kl. 10:14

2 identicon

Sko vissi ég ekki!  ţú hefur ţessar ótrúlegau miđilsgáfur drengur.... ;);)

Djennifer 11.6.2008 kl. 14:40

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband