Dauðahryglan

Hýr kökuskreytingNúna heyrist dauðahryglan í Ríkiskirkjunni, enda sýnir hún og sannar með ákvörðun sinni í dag að hún þjónar ekki hófsömum meirihluta þjóðarinnar. Það eru bara þeir sem öfgafyllstir og ófyrirleitnastir eru í sinni trú sem fagna þessari hraðahindrun sem Ríkiskirkjan rakst á í dag meðan þeir sem hófstilltari eru og raunsærri syrgja.

Samtök sem ganga út á mismunun eiga sér engan tilverurétt í siðuðu þjóðfélagi og má einu gilda hvaðan þau telja sig hafa umboð sitt. Það að mismuna fólki á grunni kynhneigðar er villimannslegt og langt frá því sem siðað og gott fólk ætti að sætta sig við og samþykkja.

Öruggt er að afstaða Ríkiskirkjunnar til samkynhneigðar verði til þess að almenningur, hin góða og hófstillta alþýða landsins, endurskoði hug sinn til hennar. Dauðahryglan heyrðist í dag, endalokin eru nærri! Og segja má að það sé nokkuð ljóðrænt að það fólk, hommar og lesbíur, sem kirkjan hefur hvað mesta vanþóknun á skuli verða aflvakinn sem flýtir fyrir endalokum hennar.
mbl.is Tóku ekki afstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óli Jón

Nú fagna nokkrir litlir hópar öfgatrúarmanna því að þetta góða mál skuli hafa farið í þennan farveg. Þeirra málsvörn er að Biblían, hið heilaga og óumbreytanlega orð Guðs, mæli fyrir um að gagnkynhneigðir séu óverðugir.

Hins vegar virðist þetta sama orð Guðs ekki eiga við þá sbr. nýja grein á vef Kristilega þjóðarflokksins þar sem kona, já!!! kona, dirfist að segja prestum, sem margir hverjir eru karlmenn, fyrir verkum. Ég hlýt að vísa í eftirfarandi ritningargrein:

Fyrra Tímóteusarbréf 2:11
11Konan á að læra í kyrrþey, í allri undirgefni. 12Ekki leyfi ég konu að kenna eða taka sér vald yfir manninum, heldur á hún að vera kyrrlát. 13Því að Adam var fyrst myndaður, síðan Eva. 14Adam lét ekki tælast, heldur lét konan tælast og gjörðist brotleg. 15En hún mun hólpin verða, sakir barnburðarins, ef hún stendur stöðug í trú, kærleika og helgun, samfara hóglæti.

Og ekki er þessari síðri:

Fyrra Korintubréf 14:35
Eins og í öllum söfnuðum hinna heilögu 34skulu konur þegja á safnaðarsamkomunum, því að ekki er þeim leyft að tala, heldur skulu þær vera undirgefnar, eins og líka lögmálið segir. 35En ef þær vilja fræðast um eitthvað, þá skulu þær spyrja eiginmenn sína heima. Því að það er ósæmilegt fyrir konu að tala á safnaðarsamkomu. 36Eða er Guðs orð frá yður komið? Eða er það komið til yðar einna?

Mér finnst allt vera á hvolfi í kristnustu stjórnmálasamtökum í heimi! Konur valsa þar um að skipa körlum á báða bóga.

Hvernig getur þetta samrýmst skýrum fyrirmælum að ofan? Getur verið að kristilegustu stjórnmálasamtök í heimi lesi Biblíuna með sömu hentisemi og þau væna aðra um að gera?

Grjót og glerhús? Einhver?

Óli Jón, 30.4.2010 kl. 09:51

2 Smámynd: Odie

3Þá komu til hans farísear og vildu freista hans. Þeir spurðu: "Leyfist manni að skilja við konu sína fyrir hvaða sök sem er?"
4Hann svaraði: "Hafið þér eigi lesið, að skaparinn gjörði þau frá upphafi karl og konu
5og sagði: ,Fyrir því skal maður yfirgefa föður og móður og bindast konu sinni, og þau tvö skulu verða einn maður.`
6Þannig eru þau ekki framar tvö, heldur einn maður. Það sem Guð hefur tengt saman, má maður eigi sundur skilja."
7Þeir segja við hann: "Hvers vegna bauð þá Móse að gefa konu skilnaðarbréf og skilja svo við hana?"
8Hann svarar: "Vegna harðúðar hjartna yðar leyfði Móse yður að skilja við konur yðar, en frá upphafi var þetta eigi þannig.
  9Ég segi yður: Sá sem skilur við konu sína nema sakir hórdóms og kvænist annarri, drýgir hór." (Matteusarguðspjall 19, 3-9)

Hér er nokkuð ljóst að allir skilnaðir aðrir en vegna hórdóms eru bannaðir.  Kirkjan hefur engu að síður leyft skilnaði.  Ekki bætir úr skák að hver sá sem skilur og kvænist aftur er að drýgja hór.  Boðorðin 10 segja meðal annars "Þú skalt ekki drýgja hór." og prestar landsins hafa verið að aðstoða fólk við þetta.

Svona er það bara.  Sumir bjóða bara syndinni í kaffi  , en vilja ekki bjóða öllum að vera með.  

Odie, 30.4.2010 kl. 10:15

3 identicon

Það er erfitt að uppræta illgresi strákar mínir... en þetta hefst á endanum..... réttlætið sigrar að lokum...

Þessi barátta er af sama meiði og réttindabarátta kvenna... þræla... trúarbrögðin hafa alltaf staðið gegn réttindum fólks

DoctorE 30.4.2010 kl. 13:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband