Mánudagur, 19. febrúar 2007
Þjóðkirkjan - geistlegt fasteignafélag?
Í Kompás-skammti kvöldsins var merkilegt að sjá forstjóra 'Þjóðkirkjunnar' verja það gegndarlausa magn fjár sem árlega er ausið í þessa stofnun. Hann nefndi m.a. að 'Þjóðkirkjunni' væri falið að sjá um 200 hús og byggingar á þjóðminjaskrá um allt land og þótti mér það býsna merkilegt því ég hef aldrei séð 'umsjón fasteigna' nefnda sem eitt af kjarnaverkefnum hennar. Er það ekki við hæfi að Þjóðminjasafnið fengi þá fjármuni sem ætlaðir eru til þess arna og taki verkefnið að sér, enda má ætla að þar sé innanborðs betri þekking og kunnátta en innan 'Þjóðkirkjunnar'. Jesús Jósepsson var víst sonur trésmiðs, en það gerir ekki þjóna 'Þjóðkirkjunnar', fullmektuga fulltrúa hans, hæfa til þess að sjá um svona menningarverðmæti enda eru húsasmíðar og fasteignaumsjón líkast til bara valfög í guðfræðinni.
Þá nefnir biskup Vinaleiðina sem tilboð 'Þjóðkirkjunnar' og innlegg hennar í mikilvægum málaflokki. Ég tel það sama eigi við hér og gildir um umsjón fasteigna; er ekki betra að beina fjármunum til félagsþjónustunnar eða annarra hæfra aðila þar sem hægt er að fá sérfræðinga (sem ekki koma til fundar við krakkana okkar hoknir af trúboðaskyldum) til að taka þetta þarfa verkefni að sér? 'Þjóðkirkjan' tekur að sér að skilgreina verkefni fyrir sjálfa sig til að vernda hagsmuni sína meðan hún er í raun að taka fé frá stofnunum sem eru mun hæfari til viðkomandi starfa.
Í ljósi ofangreinds er reyndar gaman að velta fyrir sér 'tilboðs' líkingu biskups í þessu samhengi. Ég líki þessu 'tilboði' hans við það að ég færi í Bónus þar sem starfsmaður tæki af mér tíuþúsundkall við innganginn, en leyfði mér svo að velja úr pínulítilli tilboðskörfu það sem mér litist á óháð því hvort þar væri eitthvað sem mér litist á eða hefði þörf fyrir. Það er harla aumt tilboð sem neytandinn er þegar búinn að borga dýru verði óháð því hvort hann vill eða þarfnast þess sem í boði er.
Íslendingar eru í síauknum mæli að hafna 'Þjóðkirkjunni' með því að gera sér sérstaka ferð í Borgartúnið og skera á tengsl sín við hana. Ég þykist vita að þeir Íslendingar sem vilja ekkert með 'Þjóðkirkjuna' hafa séu umtalsvert fleiri en staðtölur segja til um, en flestir hafa bara hreinlega ekki fyrir því að skjótast í Borgartúnið og ganga frá skilnaðinum. Er ekki réttara að fólk þurfi að skrá sig í 'Þjóðkirkjuna'? Okkur þætti yfirgengilegt ef öll börn væru skráð í Val eða Víking við fæðingu, hví gildir ekki hið sama um 'Þjóðkirkjuna'?
Það er mitt mat að þjóðin ætti að sameinast um að gera tilraun í eitt ár. Skráum alla úr 'Þjóðkirkjunni' og í Háskóla Íslands. Þeir sem nú þegar hafa skráð sig úr 'Þjóðkirkjunni' hafa þegar gefið sitt svar og því eru þeir undanskildir í þessari tilraun. Skoðum svo eftir árið hversu margir hafa haft fyrir því að skrá sig í 'Þjóðkirkjuna', en það er mat mitt að þeir yrðu nokkuð færri en þeir örfáu sem lögðu leið sína til Þingvalla hér um árið á kómískasta flopp Íslandssögunnar. Þar kæmi glögglega í ljós hverjir tækju 'tilboði' 'Þjóðkirkjunnar' og þá væri hægt að skera úr hvort hún beri nafn með rentu eða hvort hún sé bara sá sértrúarsöfnuður sem ég tel mig vita að hún í raun er.
Þetta veit forstjóri 'Þjóðkirkjunnar' mætavel og því reynir hann finna kompaníinu framtíðarverkefni svo aurarnir haldi áfram að rúlla inn þótt sauðirnir hverfi frá jötunni. Það skiptir litlu þótt þessi verkefni séu ekki í neinum tengslum við áður skilgreinda kjarnastarfsemi 'Þjóðkirkjunnar'; hún getur vel verið fasteignafélag eða félagsþjónusta. Áhugavert verður að sjá hvar 'Þjóðkirkjuna' ber næst niður í verkefnavali sínu. Flugumsjón? Leigubílaakstur? Laxeldi?
Spyr sá sem ekki veit!
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 13:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 6. febrúar 2007
Metan
Það er prýðileg grein á baksíðu Moggans í dag þar sem talað er um að nú myndist nægilegt magn metans í sorpurðunarstaðnum í Álfsnesi til að knýja alla bíla í Mosfellsbæ. Þetta eru í senn góðar og slæmar fréttir. Góðar sökum þeirra möguleika sem þetta gefur á að knýja 3-4 þúsund bíla með metani og slæmar vegna þess að í dag eru aðeins 55 bílar á götum Reykjavíkur sem nýta þetta frábæra eldsneyti. Málið er nefnilega þannig með metanið að það mengar ekki neitt þegar það er notað sem eldsneyti fyrir bíla! Alls ekkert! Ekki baun í bala! Nú kann einhver að segja að þetta sé algjör vitleysa, en þetta leggst þannig út:
- Metangasmyndun er óumflýjanleg aukaafurð sorpurðunar
- Sorpu er skylt að safna saman og brenna því metangasi sem myndast í stað þess að það farið út í andrúmsloftið
- Ef gasið er notað á bíla verður til sama mengun og ef gasinu væri brennt beint á söfnunarstað
Ergó, mengunin verður til hvort eð er! Spurningin er bara sú hvort hún komi til vegna algjörlega gagnslauss bruna á sorpurðunarstað eða hvort hún komi í stað bensínmengunar frá bílum?
Í dag er það afar hagkvæmt að reka metangasbíl. Skrifari prófaði um daginn metanbílinn VW Touran og reyndi það á eigin skinni að hann er afar léttur á fóðrum. Hverjir 100 kílómetrar á þessum 7 manna lúxusbíl kostuðu tæpar 700 krónur. Þannig hefðu 450 kílómetrarnir kostað um 3.150 krónur og hver man eftir því að hafa síðast fyllt á stóran, sjö manna bíl fyrir rétt rúmlega þrjú þúsund kall? Metanbílar keyra því ekki aðeins mengunarlausir (sbr. ofangreinda röksemd), heldur eru þeir mun hagkvæmari í rekstri. Ekki spillir fyrir að í dag er gefinn afsláttur af aðflutningsgjöldum sem nemur 350 þúsund krónum sem gerir þá ódýrari í innkaupum líka.
Ég skora á tveggja bíla fjölskyldur sem fara daglega um Ártúnsbrekkuna að íhuga það að skipta öðrum bílnum út fyrir metanbíl. Þannig er hægt að njóta þess að keyra innanbæjar í fullkominni sátt við náttúruna á metanbílnum, en nota bensínhákinn þegar fara skal út fyrir borgarmörkin. Þar er nefnilega komið að helsta annmarkanum í metanvæðingunni, það er aðeins ein áfyllingarstöð og er hún á Höfðanum. Staðsetning þessarar stöðvar markar þannig þann ferðaradíus innan hvers metanbílar geta athafnað sig. Fyrir tveggja bíla fjölskyldur er þetta ekki vandamál.
Ég hvet alla áhugasama til að prófa að skoða metanbíl, ég þykist viss um að þeir hjá Heklu taki vel á móti áhugasömum. Það finnst ekki nokkur munur á honum og bensínbíl í akstri, munurinn liggur í töluverðum sparnaði og hreinna andrúmslofti.
Bloggar | Breytt 7.2.2007 kl. 11:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 5. febrúar 2007
Djörfung og dugur
Þakka ber það sem vel er gert, en betur má ef duga skal. Með djörfung og dug mætti gera Ísland að Kuwait norðursins með því að setja í gang svo mikla framleiðslu vetnis að við gætum knúið bíla okkar og skip með innlendum orkugjafa í stað innfluttra. Þetta er ekki fjarlægur eða óraunhæfur draumur; heyrst hefur að Kárahnjúkavirkjun ein gæti framleitt nægt vetni til þessa arna og jafnvel með smá afgangi til útflutnings. Bílaframleiðendur bjóða nú flestir vetnisbíla og fullyrða að þeir verði samkeppnishæfir í verði árið 2010. Ísland á möguleika því að framleiða og nota grænasta vetni í heimi; framleitt með vatnsafli í fullkominni sátt við náttúruna.
Við gætum sett okkur það að markmiði í dag að hætta innflutningi á erlendum orkugjöfum eftir 10 ár og nýta alfarið íslenska, vistvæna orku. Þetta er ekki fjarlægur draumur, markmiðið er í hendi ef við hugsum nógu stórt. Í raun er það skylda okkar gagnvart börnum okkar og barnabörnum að gera þetta því með þessu myndum við verða leiðandi afl í þessari umræðu á heimsvísu og þannig gætum við haft margfalt meiri áhrif til góðs en t.d. með árs setu í Öryggisráði sameinuðu þjóðanna, en kosningabarátta okkar til hennar mun víst kosta fimmfalt það sem nú er verið að leggja í vetnið skv. Moggafréttinni. Það væri áhugavert ef einhver talnaglöggur lesandi þessara skrifa myndi setja inn sem athugasemd áætlaðan árlegan orkuinnflutning okkar. Skrifari giskar á að hann hlaupi á 10-20 milljörðum árlega. Það er nú bærilegur arður af einni grænustu framkvæmd sem sagan hefur hingað til séð.
Hér er fimm-punkta-planið mitt sem einhver góður stjórnmálamaður ætti að taka upp og gera að sínu:
- Hefjum stórvirka framleiðslu vetnis
- Gefum góða afslætti af aðflutningsgjöldum vetnisbíla
- Fjölgum vetnisstöðvum á landinu
- Hættum innflutningi hefðbundinna orkugjafa eftir 10 ár
Fimmti punkturinn er að gera Hjálmar Árnason að vetnisforingja landsins til að leiða þessa áætlun, enda er hann sá stjórnmálamaður sem hefur talað hvað lengst og með samfelldustum rómi um þetta mál.
Ef við gerum þetta myndum við fá slíka góðviljainnstæðu meðal borgara heimsins að við gætum gert að hval á Austurvelli án þess að nokkur gerði athugasemd við það! Svo yrðum við líka sjálfstæð þegar kæmi að orkumálum og líklega er það einhvers virði líka.
![]() |
Ríkið setur 225 milljónir í vetnisverkefni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 31. janúar 2007
Vive la France!
Það er alltaf gaman að því þegar vísindin sækja fram á hárréttum stöðum. Við hin svefnsjúku styðjum Fransarana í þessu merka rannsóknarstarfi. Því til sönnunar hef ég gefið mig fram við franska sendiráðið til að gerast sjálfboðaliði í þessu ágæta starfi. Í reynd hef ég þegar byrjað mínar eigin rannsóknir og dotta því eins oft og ég get í vinnunni. Fyrstu niðurstöður benda til þess að tíminn líður mun hraðar í vinnunni ef maður sefur meirihluta vinnutímans. Þessar niðurstöður lofa góðu, en ég mun halda áfram minni vinnu til að staðfestingar.
Zzzzzzzzz ...
![]() |
Frakkar kanna kosti þess að blunda í vinnutíma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 29. janúar 2007
Næsta mál á dagskrá
Ég er afar feginn því að þetta merka og mikilvæga þjóðþrifamál skuli vera frá; nú geta vísindamenn heimsins einbeitt sér alfarið að því að koma böndum á hnattræna hlýnun án þess að þetta úrlausnarefni sé að naga samvisku þeirra.
En má ég nú eiga von á því að vinir mínir sendi mér SMS og biðji mig um að kíkja á Netið til að segja þeim hvernig jakkafötin fari þeim? Vonandi ekki, en ég verð klár í slaginn ef af verður. Þið þekkið númerið, félagar!!!
![]() |
Sýndarmátun nýjasta tækniundrið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 29. janúar 2007
Fjölin fundin!
Allir velunnarar þessa merka bloggvefjar geta tekið gleði sína því skrifari hefur fundið sína fjöl í bloggheimum. Þannig munu innlegg skrifara alla jafna verða kaldhæðnislegar athugasemdir sem hengdar verða við misalvarlegar fréttir á mbl.is, en ekki er loku fyrir skotið að brugðið verði út af þeirri venju endrum og sinnum. Þá verður markið sett hátt og í þeim anda reynt að blogga af og til sem er oftar en stundum en sjaldnar en oft.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 29. janúar 2007
Hvílir einhver bölvun á þessum titli?
Ég tel það vonda vegtyllu að vera titlaður elsta manneskja í heimi, því hingað til hefur það fólk dáið skömmu síðar sem hefur hlotið þessa nafnbót. Þá er betra að vera bara á meðalaldri og eiga einhverja von um langlífi.
![]() |
Elsta manneskja í heimi látin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 15. janúar 2007
Að blogga eða ekki blogga ...
Ég fékk áminningu frá Mogganum þar sem mér var sagt að henda út færinu og fiska eða hypja mig heim. Það er ekki útséð um hvað verður með þetta blogg ... er þetta bóla eða ekki? Helgi félagi segir þetta bara tízkufyrirbrigði sem brátt muni fara hjá og líklega er það sterkasta vísbendingin um að bloggið sé komið til að vera.
Altént ... málið er í nefnd.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)