Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

En hvað um að hún innheimti sóknargjöldin sjálf?

Massi af seðlumNú er boltanum kastað upp í þeim viðræðum sem framundan eru. Fulltrúar Ríkiskirkjunnar hafa lengi kvartað yfir skörðum hlut úr núverandi kerfi í hverju hún fær ókeypis peninga án þess að þurfa að gera nokkuð.

Áhugavert er að sjá að biskup er fámáll þegar spurt er hvort Ríkiskirkjan taki yfir innheimtuna. Helst grunar mig að liðið hafi yfir biskup, enda er þetta ein ósvífnasta spurning sem hægt er að leggja fyrir hann. Allir vita að þetta hefur verið reynt og útkoman var skelfileg því sóknarbörnin borguðu ekki. Því er þessi möguleiki ekki á borðinu, ekki einu sinni fræðilega, svo hræðilegur er hann.

Nei, það skal vera ríkisins að baktryggja öll sóknargjöld án þess að hægt sé að verja það með haldgóðum rökum. Ríkiskirkjan þarf pening og það er ríkisins að skaffa hann. Annars slokkna öll ljósin og allir verða vondir.

PS. Lesendur verða að afsaka þessa myndafölsun, en ég fann bara ekki nógu stóra mynd sem gæti rúmað alla þá peninga sem árlega er sturtað í Ríkiskirkjuna.


mbl.is Fjöldi presta eina sem má endurskoða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endurskoðun á öllum fjárhagslegum tengslum ríkis og kirkju

Gleðitíðindi bárust í dag frá Alþingi í nefndaráliti um frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2015. Fyrir utan þá niðurlægingu ríkisins að þurfa að borga Ríkiskirkjunni 370 milljónir aukalega þá er eftirfarandi texta að finna í álitinu:

Í öðru lagi hækkar framlag til Þjóðkirkjunnar um 370 millj. kr. og miðast hækkunin við að framlag ríkissjóðs verði reiknað samkvæmt upphaflegu kirkjujarðasamkomulagi og þar með að allar aðhaldskröfur sem gerðar hafa verið til Þjóðkirkjunnar frá og með árinu 2009 verði afturkallaðar árið 2015. Forsendur þessarar tillögu eru að ríkið gerir það jafnframt að skilyrði að kirkjan skuldbindi sig til þess að hefja þegar samningaviðræður um endurskoðun kirkjujarðasamkomulagsins sem feli í sér endurskoðun allra fjárhagslegra samskipta ríkis og kirkju (þ.m.t. hvað varðar sóknargjöld, jöfnunarsjóð sókna, framlög til kirkjumálasjóðs og Kristnisjóðs) með verulega einföldun þessara samskipta og hagræðingu að markmiði.

Ekki hef ég mikla trú á að agentar ríkisins standi í lappirnar í þessum viðræðum, en ef ég gæti beðið Guð um einn hlut þá væri það að gerð yrði ítarleg kostnaðar- og tekjugreining á því undarlega ofbeldissambandi sem ríkið er í með Ríkiskirkjunni. Bara sá einfaldi og þarfi gjörningur myndi varpa ljósi á þá ótrúlegu meðgjöf sem dælt hefur verið í þetta apparat í gegnum tíðina og ekkert lát virðist á.

Ég veit að litlar líkur eru á að ég verði bænheyrður, en það sakar ekki að reyna :)


150 milljóna króna smölunarleiðangur Ríkiskirkjunnar

Ríkiskirkjan nagar nú skjaldarrendur og heitir því að fjölga í sauðatali sínu með öllum ráðum. Ekki virðist duga að fá flest nýfædd börn 'gefins' inn á félagatalið fyrir tilstuðlan ríkisins því í fjöldatölum rétt nær hún að halda sjó, en gefur eftir hlutfallslega eftir því sem Íslendingum fjölgar.

Íslendingar eru nefnilega svo vitlausir að ótilneyddir taka þeir ekki við boðskap kirkjunnar. Ótilneyddir borguðu þeir ekki félagsgjöldin, ótilneyddir skrá þeir sig ekki í félagatal hennar, ótilneyddir fara fæstir í kirkju, ótilneyddir fræða fæstir börn sín um kristni og ótilneyddir biðja fæstir bænirnar sínar reglulega.

Eitthvað er stórkostlega mikið að og það veit nefndin þegar hún segir: "Verði ekki brugðist við er líklegt að þróun til fækkunar í þjóðkirkjunni haldi áfram næsta áratug og sígi niður undir 60% af mannfjöldanum eins og virðist stefna í víðast hvar annars staðar á Norðurlöndum." Hún mun reyndar fara miklu neðar en það, en á meðan nýfæddum börnum er raðað í jötuna gerist það bara hægt.

En í stað þess að skoða vöruna, fyrirbærið sem fólk er að hafna, og kanna hvort hún eigi yfir höfuð erindi við þjóðina sem hafnar henni verður farið í fáránlega dýra markaðssókn fyrir Guð, Jésús og heilagan anda hérlendis. Eins og segir í skýrslu útbreiðslunefndar eru tækifærin fjölmörg:

Mikill meirihluti þjóðarinnar tilheyrir enn Ríkiskirkjunni
Já, gögn Þjóðskrár sýna eitt falsaðasta félagstal sem fyrirfinnst í heiminum, en það er grundvallað á því að ríkið hefur í gegnum tíðina skráð nokkurra daga börn í trúfélög. Þeir sem gera sér slíkar trakteringar að góðu er lítilþægasta og metnaðarminnsta fólk sem fyrirfinnst.

Trú á Guð er enn almenn (yfir 70%)
Nýleg könnun Gallup sýnir að 51% þjóðarinnar telur sig trúað og þá ekki bara á gamla Guð. Miðað við þessa könnun eru kristnir komnir í minnihluta þjóðarinnar.

Meirihluti telur enn að trú sé mikilvæg í lífi sínu
Þetta er stórmerkilegt því hvar er þá þetta fólk? Ekki mætir það í kirkju, ekki biður það bænirnar sínar og ekki vill það borga trúartollinn. Þetta er eins og að segjast vera harður aðdáandi Liverpool en horfa aldrei á leik, eiga ekki treyju, spila ekki FIFA 2015 og þekkja ekki leikmennina.

Meirihlutinn lætur fermast
Krakkarnir græða stórt á því að fermast, nóg um það sagt :)

Mikil meirihluti telur enn að kirkjulegar athafnir við fæðingu og dauða séu mikilvægar
Gaman væri að sjá gögn þess efnis, þau eru ekki birt í skýrslunni. Mig grunar þó að fólk telji mikilvægt að fagna nýjum einstaklingum og kveðja á gömlu. Sjá betur næsta lið.

Skírnin er almenn og mikil þáttaka er í útfararþjónustu kirkjunnar
Að sama skapi má benda á fánýti trúarinnar með því að benda á þá staðreynd að í veraldlegum athöfnum mætir jafn mikið af fólki, enda fer fólk í þessar athafnir til þess að fagna nýjum einstaklingi eða kveðja brottfarinn. Þetta veit nefndin vel þegar hún segir að "fáir stunda 'persónubundna kirkjusókn'", þ.e. að fáir fari í kirkju fyrir sig.

Áhugavert verður að sjá hvernig þessi stórsókn Ríkiskirkjunar fer. Hún vill fara inn í skólana skv. skýrslunni, enda eru gjöfulustu miðin þar. Og til áréttingar þá er ekki verið að tala um framhalds- og háskóla. Nei, þar er fólk orðið of upplýst og gagnrýnið. Leik- og grunnskólarnir gefa best því þar þurfa áheyrendur að þegja að meðtaka allt sem fyrir þá er lagt sem, hmmm, heilögum sannleik.

Getum við ekki þó verið sammála um að ef hún klikkar er orðið dagljóst að Íslendingar vilja þetta ekki og ef hún lukkast bara pínulítið að slíkur árangur sé of dýru verði keyptur?

En ljóst er að nefndin telur framtíðina dökka því í skýrslunni segir: "Starfshópurinn telur að það liggi beint við að kirkjan vinni út frá þeim styrkleika sem felst í þessari stöðu á meðan hún er fyrir hendi." Já, hún hefur ekki mikla trú á því að núverandi staða mun halda og því þurfi að reiða til höggs á meðan þetta er þó svo gott því þetta er eins gott að það verður.

PS. Mér líst vel á þetta sem nefndin segir: "Haldinn verði einn stór viðburður á hverju ári sem með einhverjum hætti er táknrænn fyrir starfið og tengist áhersluatriði þess árs." Er ekki til skipulag frá árinu 2000 sem er í raun alveg ónotað?


Brandari gærdagsins

"Ef farið væri í mál við þjóðkirkjuna þá kæmi það í ljós að hún hefur barist fyrir réttindum samkynhneigðra og er þar í fararbroddi."
# Gísli Gunnarsson, fulltrúi vígðra í kirkjuráði, árið 2015.

"Hjónabandið á það inni hjá þjóðinni að því sé ekki kastað á sorphaugana."
# Karl Sigurbjörnsson, þáverandi biskup Ríkiskirkjunnar, árið 2006.

Ekki myndi ég fá Ríkiskirkjuna til þess að berjast fyrir mig ef þetta er það sem hún gerir þegar hún er í fararbroddi.

Er ekki kominn tími á leiðréttingu á trúfélagaskráningu einhvers staðar?

 


Útvarp Saga og ISIS hryðjuverkamennirnir þar

Gaman er að sjá niðurstöður nýlegrar könnunar í hverri var spurt hvort ISIS hryðjuverkamenn gætu leynst í hópi starfsfólks Útvarps Sögu. Niðurstaðan er afgerandi, 92% svarenda telja að svo sé.

isis utvarp saga

En þessi könnun á reyndar það sameiginlegt með þeim könnunum sem Útvarp Saga stendur fyrir að hún er gjörsamlega marklaus. Úrtakið valdi sig sjálft og það eitt og sér gerir hana ómarktæka. Síðan er hægt að skoða öryggismál netkannana og hvernig hægt er að fara í kringum þau.

Stóri punkturinn er að það er ábyrgðarmál að birta illa gerða skoðanakannair og láta sem niðurstöður þeirra séu marktækar. Það getur bara flokkast sem ísköld lygi og vísvitandi afbökun á sannleikanum. Málið er nefnilega að fjöldi fólks er móttækilegt fyrir því sem matreitt er ofan í það og sjái það kökurit með niðurstöðum úr könnun líta margir svo á að engin ástæða sé til þess að efast um það. Það gerir engan greinarmun á t.d. ruslinu frá Útvarpi Sögu og alvöru könnunum sem gerðar eru af alvöru fyrirtækjum sem nota gott vinnulag.

Því þurfa álitsgjafar að vera meðvitaðir um ábyrgð sína þegar þeir nota niðurstöður skoðanakannana til stuðnings málstað sínum. Ef málstaðurinn er góður er hann studdur með niðurstöðum góðra kannana, en vondur málstaður á sér yfirleitt bara bólfestu í skoðanaruslinu sem Útvarp Saga togar út úr skutnum á sér.


Leyfum Gideonistum að heimsækja grunnskólana

Hin þróttmiklu stjórnmálasamtök, Íslenskir krossmenn, sendu frá sér álit um daginn í hverju talað var um að leyfa ætti Gideonistum að fara með trúboð sitt í leik- og grunnskóla. Krossmennirnir gerðu reyndar enga kröfu um að leyfilegt yrði að fara í framhalds- og háskóla því þar eru sauðirnir ekki eins meðfærilegir, en það er annað mál.

Ég er því sammála að hleypa eigi Gideonistum í skólana og mega þeir þá hafa með sér gítar og spila og tralla með krökkunum. Þeir mega segja að Jesús sé besti vinur barnanna og að án hans lifi börnin innantómu og holu lífi. Þeir mega segja að án Jesúss muni þeim ekki farnast vel í handanlífinu, en með Jesús sér við hlið muni þau eiga eilífðarvist á himnum með liðsmönnum Kristilega krossfestingarbandalagsins undir glymjandi harmonikkuspili allan daginn, alla daga.

Það eina sem þeir geta ekki gert er að afhenda bláa kverið, en þess í stað mega þeir afhenda gjafabréf á hverju stendur að handhafi bréfsins eigi tilkall til Nýja testamentisins hja Gideonistum og sé handhafinn ávallt velkominn í heimsókn til þess að heimta þessa himnagjöf.

Ef börnin gera aðsúg að höfuðstöðvum Guðs á Íslandi við Langholtsveginn svo þau geti sefað hungur sitt í orð Guðs er ljóst að þessa tilraun mætti gera aftur að ári. Verði mæting hins vegar dræm er að sama skapi ljóst að Gideonistar eiga ekkert erindi til ungu kynslóðarinnar og sé þeim því best að spara trén, þessa fallegu sköpun Guðs, og láta af þessari þráhyggjuhegðun.

Er þetta ekki fín leið til þess að skerá úr um þetta leiðindamál í eitt skipti fyrir öll?

PS. Fyrir öll börnin sem þetta lesa og geta ekki beðið eftir þessu flotta nýmæli: Þið getið heimsótt Gideonistana að Langholtsvegi 111 alla virka daga á milli kl. 12-15:50 og fengið ykkar eigið eintak af Nýja testamentinu. Athugið þó að eftir klukkan 14 getur framkvæmdastjórinn þó brugðið sér af bæ og því er betra að vera fyrr á ferðinni!


Lífæð Ríkiskirkjunnar fyrir gerðardóm?

Ég vona að þetta mál (Rúv: Kirkjan líklega með ríkið fyrir gerðardóm) fari snarlega fyrir gerðardóm og fái þar málefnalega meðferð. Þessi ömurlegi gjörningur, sem vélað var um af hópi gamalla fermingardrengja í denn tíð sem ekkert vit virðast hafa á samningagerð, hefur reynst íslenskri þjóð allt of dýr og tímabært er að vinda ofan af honum. Þrátt fyrir hástemmdar yfirlýsingar um verðmæti jarðanna hefur Ríkiskirkjunni aldrei tekist að lifa af gæðum landsins og ítrekað þurft að leita til ríkisins til þess að fá pening. Þegar jarðirnar gáfu lítið af sér var farið til ríkisins og þegar sauðirnir hættu að borga sóknargjöldin var ríkið látið sjá um innheimtuna á trúartollinum.

Þessir fjármunir eru notaðir til þess að byggja og viðhalda, að mestu, tómum kirkjum um allt land og borga laun presta sem fá rúmlega hálfa milljón á mánuði sem er 200 þúsund krónum meira en læknakandidat fær.

Ríkið þarf að segja upp jarðasamningnum, taka til sín ákveðinn hluta jarðanna sem það er sannarlega búið að borga upp í topp og skila afgangnum. Síðan þarf að afleggja sóknargjaldakerfið því engin skynsamleg rök eru fyrir því að hverju ríkið þurfi að borga félagsgjöld í einni gerð félaga (gjöldin eru ekki innheimt lengur, þetta er bara greiðsla úr ríkinu pr. sauð).

Aðeins þá kemur í ljós hver raunverulegur hugur þjóðarinnar er til Ríkiskirkjunnar, en það má hafa í huga við þær vangaveltur að hlutdeild hennar á trúarmarkaðnum hefur rýrnað um rúmlega prósentustig árlega undanfarin fimmtán ár og það þrátt fyrir að enn tíðkast sjálfvirkar skráningar nýfæddra barna í trúfélag.

Guð blessi Ísland :)

 

PS. Ég veðja á að Ríkiskirkjan muni ekki fara með þetta mál fyrir gerðardóm því þrátt fyrir allt getur hagur hennar aldrei orðið betri en hann er nú. Peningarnir flæða inn frá ríkinu og hún veit að hún fengi ekki nema brot af þeim fjárhæðum ef hún þyrfti að reiða sig á sóknarbörn sín.

PSS. Þrátt fyrir meintar fjárhagslegar hremmingar slær Ríkiskirkjan ekkert af og byggir nýja kirkju í Hafnarfirði. Er það merki um kröm að streðast við að auka við fitulagið? Ég held ekki. Einhvers staðar hlýtur að vera til dæmisaga um ráðsmanninn sem eyddi umfram efni. Kannski þekkja ráðsmenn Ríkiskirkjunnar ekki þessa sögu? Kannski þyrfti Gideon að beina spjótum sínum að Biskupsstofu í stað 5-6 ára barna? Kannski?


... þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga.

Í þessari frétt Moggans kemur fram að enn hriktir í fúnum stoðum Ríkiskirkjunnar því þrátt fyrir linnulausa ríkisvélskráningu nýfæddra og trúlausra barna í trúfélög þá fækkar sauðum í félagatali hennar. Ég hef svo sem oft tjáð mig um þessi mál og ætla ekki að bæta í það núna fyrir utan það að segja hve bjartsýnn ég er á framtíðina í þessum efnum og hversu jákvæð þessi þróun er því með þessu er í það minnsta verið að leiðrétta kolrangar staðtölur í opinbörum gagnagrunnum.

Það er nefnilega þannig að merking í Þjóðskrá segir ekkert til um trúarhneigðir þess fólks sem skráð var í trúfélag við fæðingu. Þetta sér blaðamaður Moggans þegar hann segir:

"Þar sem að skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga.

Því má leiða traustum líkum að því að fjöldi þess fólks sem skráð er í trúfélög í dag séu þar algjörlega að tilefnislausu. Þetta sýnir sig í því að í dag skrá sig t.d. fleiri úr Ríkiskirkjunni en fæðast inn í hana og það án þess að fólk hafi af því fjárhagslegan ávinning að skrá sig úr samvistum við þessa stofnun.

En eins og ég sagði, þá er ég bjartsýnn og jákvæður vegna framtíðarinnar. Leiðréttingin hvað varðar Ríkiskirkjuna er rúmlega prósentustig árlega og þótt hún gangi of hægt fyrir sig sökum þess að ekki má hrófla við þessum tekjustofni hennar, þá er þetta samt að bíta hægt og rólega. Haldi áframhaldandi þróun áfram verður skráð félagatal hennar komið undir 50% innan 20 ára, en sú þróun mun þó verða hraðari því fólk skráir sig úr eða deyr frá henni hraðar en hægt er að ríkisvélskrá litlu börnin í hana.

Já, það er því full ástæða til bjartsýni og jákvæðni :)


mbl.is Fækkar í Þjóðkirkjunni en fjölgar í Siðmennt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mál til komið!

Loksins er þetta þjóðþrifamál í sjónmáli. Þessi lög voru kjánalegur óþarfi þegar þau voru samin og samþykkt og eru jafn óþörf í dag.

Nú eigum við bara eftir að henda bingólögunum út í hafsauga líka og svo skráningu nýfæddra barna í trúfélög og svo ríkisfjármögnun trúfélaga og svo ...

Það er nóg eftir, því miður :(


mbl.is Bann við guðlasti verði afnumið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kreddur og fordómar á undanhaldi

Mikið er gaman að sjá að á heimsvísu flæði almennt undan fordómafylkingu Jóns Vals, Gylfa Ægissonar og Útvarps Sögu. Það er helst þar sem trú hefur náð að sýra fólk í vanþróaðri löndum sem hægt er að finna sjónarmið á borð við þau sem áðurnefndir menn og fyrirbæri standa fyrir, en í upplýstari hlutum heimsins eiga þau hreinlega ekki upp á pallborðið. Jafnvel í hinu rammkaþólska Írlandi sjá sauðirnir að fordómarnir eru tærandi og byggðir á illu innræti, en á móti kemur þá seljast smokkar ágætlega þarlendis þannig að í raun hefur kaþólskan ekki jafn mikil tök þar og ætla mætti.

Þetta er vondur dagur fyrir kreddubandalag Kristna þjóðarflokksins (lesist Jón Val), veftröllið Gylfa Ægisson og það vesalings fólk sem fylgir þeim að málum. Fyrir okkur hin er hann hins vegar bjartur og góður því þarna var enn eitt lóðið lagt á vogarskál sanngirni og réttlætis.

Til hamingju hommar, lesbur og velgjörðarfólk, ykkar er dagurinn. Hinir geta bara sleikt sárin í skugganum.


mbl.is Já-sinnar fagna sigri á Írlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband